Breiðablik hefur ekki farið sannfærandi af stað í Lengjubikarnum og hefur liðið tapað þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum, allt gegn liðum úr Lengjudeildinni. Eini sigurinn Blika kom gegn FH.
Þó ber að hafa í huga að Blikar eru skemur komnir í undirbúningi en flest önnur lið. Æfingar hófust ekki fyrr en um síðustu mánaðarmót þar sem félagið var í keppni í Sambandsdeildinni fram eftir vetri.
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari liðsins, ræddi við Fótbolta.net fyrr í dag og var hann spurður út í stöðu mála í Kópavogi.
Þó ber að hafa í huga að Blikar eru skemur komnir í undirbúningi en flest önnur lið. Æfingar hófust ekki fyrr en um síðustu mánaðarmót þar sem félagið var í keppni í Sambandsdeildinni fram eftir vetri.
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari liðsins, ræddi við Fótbolta.net fyrr í dag og var hann spurður út í stöðu mála í Kópavogi.
Horfa lítið í úrslitin
Eru úrslitin áhyggjuefni?
„Nei, alls ekki. Við erum ekki á sama stað og önnur lið núna. Við erum að klára fyrsta æfingamánuðinn núna. Við byrjuðum Lengjubikarinn með 2. flokkinn í fyrsta leik, svo höfum við verið að mjatla mönnum inn. Við spiluðum með sterkt lið á móti Leikni en við erum ekki á sama stað og önnur lið 'fitnesslega' séð. Sem er kannski eðlilegt. Við erum ekki að horfa mikið í úrslitin núna. Við erum að einbeita okkur að koma okkur í betra stand, samhliða því að æfa vel. Við erum á fínum stað.“
Rúmur mánuður í mót og þið á réttri leið?
„Ekki spurning. Eins og ég segi þá erum við kannski örlítið þyngri núna en önnur lið. Við erum búnir að vera með þétta æfingadagskrá og fáum síðan þessa leiki inn á milli. Það er nægur tími til stefnu, þannig við erum á góðu róli.“
Eðlilega horft til Ívars í langan tíma
Breiðablik keypti nýverið Ívar Örn Árnason frá KA. Blikar reyndu við hann fyrir ári síðan KA hafnaði þá tilboði Breiðabliks. Ólafur var spurður út í nýjasta liðsmanninn.
„Hann hefur komið mjög vel inn í þetta. Þetta var hans fyrsta æfingavika og hún hefur gengið vel. Hann er bæði frábær leikmaður og mjög öflugur karakter sem gefur okkur mikið. Við vorum að leita af styrkingu til lengri tíma. Og hann fer á 3+1 samning og við horfum á hann sem leikmann sem mun koma til að nýtast okkur vel næstu árin.
Hann er auðvitað með gífurlega reynslu úr deildinni og fyrrum fyrirliði KA. Við höfum eðlilega horft á hann í svolítinn tíma. Hann er með betri hafsentum deildarinnar og við erum mjög fegnir að hafa fengið hann.“
Ánægður með hópinn en opinn fyrir styrkingum
Breiðablik hefur sótt tvo leikmenn í vetur. Það eru þeir Jónatan Guðni Arnarsson og fyrrnefndur Ívar Örn Árnason. Ólafur var spurður hvort hann búist við frekari styrkingum fyrir mót.
„Það má alveg vera. Við erum aktívir að skoða og kíkja í kringum okkur. Við erum mjög sáttir með hópinn. En ef við finnum eitthvað sem við teljum okkur styrkja liðið þá skoðum við það vandlega. En við erum ekkert örvæntingafullir. Erum með gott lið og góðan hóp en erum opnir ef eitthvað býðst.“
Það hefur verið rætt um að þið viljið miðjumann, ertu að horfa í einhverjar sérstakar stöður?
„Nei, það fer eftir því hvort að einhverjir fari frá okkur. Við erum bara virkir í því að skoða í kringum okkur.“
Fjórir lykilmenn meiddir
Valgeir Valgeirsson, Ásgeir Helgi Orrason, Anton Logi Lúðvíksson og Viktor Karl Einarsson hafa allir verið fjarverandi vegna meiðsla. Ásgeir ristarbrotnaði í vetur en er að snúa til baka.
„Þessir fjórir eru frá eins og staðan er núna. Ásgeir Helgi er farinn aðeins að æfa með bolta, það er mjög jákvætt. Það er aðeins lengra í Valgeir og Anton. Við erum í smá biðstöðu með hversu alvarleg meiðslin eru hjá Viktori. Hann fór í röntgen og hann er óbrotinn. Við vonumst til að þetta er ekki jafn alvarlegt og við óttuðumst fyrst. Þetta lítur ágætlega út. Ég hugsa að við förum með hann í segulómskoðun til að vera öruggir á þessu varðandi liðbönd og annað.“
Býstu við þeim klárum þegar mótið hefst?
„Já, ég reikna með þeim öllum klárum. Auðvitað bíðum við eftir að bólgan hjaðni hjá Viktori Karli en ég reikna með að hinir þrír verði klárir þegar mótið byrjar.“
Athugasemdir



