Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
   fös 27. febrúar 2026 23:06
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: Lens missteig sig aftur
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Strasbourg 1 - 1 Lens
1-0 Joaquin Panichelli ('18)
1-1 Mamadou Sangare ('62)

Strasbourg spilaði við Lens í eina leik franska boltans og náðu heimamenn í Strasbourg forystunni í fyrri hálfleik þegar Joaquín Panichelli nýtti sér herfileg varnarmistök til að skora.

Lens var sterkara liðið en Panichelli komst í herfilega sendingu frá varnarmanni til markmanns og vippaði boltanum svo skemmtilega yfir markvörðinn til að klára frábært færi með marki.

Lens var áfram sterkari aðilinn en heimamenn fengu einnig sín færi og var staðan 1-0 í leikhlé. Gestirnir í liði Lens skiptu um gír í síðari hálfleiknum og skoruðu verðskuldað jöfnunarmark á 62. mínútu.

Mamadou Sangaré var þar á ferðinni með frábæru viðstöðulausu skoti eftir hornspyrnu. Strasbourg mistókst að hreinsa boltann langt úr teignum og nýtti Sangaré sér það. Hann sýndi magnaða skottækni til að hitta erfiðan bolta og koma honum í gegnum svakalega þvögu sem hafði myndast í vítateignum og í bláhornið.

Lens fékk nokkur færi til að taka forystuna en boltinn rataði ekki í netið, svo lokatölur urðu 1-1. Þetta er skellur fyrir Lens sem er núna búið að misstíga sig í tvo leiki í röð í titilbaráttu frönsku deildarinnar.

Lens er einu stigi á eftir risaveldi PSG sem á leik til góða. Strasbourg er í harðri baráttu um evrópusæti.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner