Porto styrkti stöðu sína á toppi portúgölsku úrvalsdeildarinnar í gær með dramatískum 3-1 sigri gegn Arouca á heimavelli.
Sigurinn var ekki sannfærandi en Porto skoraði tvisvar í uppbótartímanum.
Sigurinn var ekki sannfærandi en Porto skoraði tvisvar í uppbótartímanum.
Annað markið kom úr umdeildri vítaspyrnu sem ekki allir voru sáttir með. Benfica, keppinautar Porto, sendu frá sér athyglisverða færslu á X eftir leikinn.
Benfica deildi myndbandi af vítaspyrnudómnum og skrifaði við myndbandið: „Engin vítaspyrna, sviksamlegur sigur. Tvö stig afhent. Þannig er auðvelt að halda forystunni."
Benfica er tíu stigum á eftir Porto með leik til góða. Porto er jafnframt fjórum stigum á undan Sporting sem er í öðru sæti deildarinnar.
Hér fyrir neðan má sjá færsluna hjá Benfica.
Penálti inexistente, vitória mentirosa. Dois pontos oferecidos. Assim, é fácil continuar à frente. pic.twitter.com/b7rNHQEmPq
— SL Benfica (@SLBenfica) February 27, 2026
Athugasemdir


