Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lengjubikar kvenna: Gri/Nja með óvæntan sigur á FH
Kvenaboltinn
Mynd: Gri/Nja
FH 0 - 1 Grindavík/Njarðvík
0-1 Hannah McLaughlin ('23)

Einn leikur fór fram í Lengjubikar kvenna í gær, en fresta þurfti leik Breiðabliks og Víkings vegna veðurs.

FH tók á móti nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur í Skessunni í Hafnarfirði. FH endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar í fyrra og Grindavík/Njarðvík endaði í 2. sæti Lengjudeildarinnar.

Gestirnir skoruðu eina mark leiksins á 23. mínútu og var það miðvörðurinn Hannah McLaughlin sem skoraði sigurmarkið.

Grindavík/Njarðvík er með sex stig eftir þrjá leiki en FH er með þrjú stig. Þróttur og Stjarnan eru einnig með sex stig í þessum riðli 1 í A-deild Lengjubikarsins.

Athugasemdir
banner
banner
banner