Parma 1 - 1 Cagliari
0-1 Michael Folorunsho ('63)
1-1 Gaetano Oristanio ('83)
0-1 Michael Folorunsho ('63)
1-1 Gaetano Oristanio ('83)
Parma og Cagliari tókust á í eina leik kvöldsins í efstu deild á Ítalíu og var staðan markalaus eftir skemmtilegan fyrri hálfleik.
Bæði lið fengu færi til að skora í fyrri hálfleiknum og var leikurinn áfram opinn og skemmtilegur eftir leikhlé. Michael Folorunsho, sem er nýkominn úr meiðslum, skoraði magnað opnunarmark á 63. mínútu þegar hann var með boltann langt úti á hægri kanti og ákvað að láta vaða með algjörum þrumufleyg sem rataði undir samskeytin í fjærhorninu. Stórfenglegt mark.
Heimamenn í liði Parma færðu sig talsvert ofar á völlinn eftir þetta á meðan gestirnir frá Sardiníu bökkuðu. Það tók Parma aðeins 20 mínútur að jafna metin, boltinn féll fyrir Gaetano Oristanio á frábærum stað innan vítateigs og kláraði hann með marki. Lokatölur 1-1.
Bæði lið eru í neðri hluta deildarinnar, Parma er þremur stigum fyrir ofan Cagliari sem er sex stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Parma 0-[1] Cagliari - Michael Folorunsho 62' (Great Goal)
by
u/977x in
soccer
Athugasemdir



