Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 10:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Styttist í lykilmenn Víkings - Sölvi spurður út í Jóa Bjarna
Sölvi á hliðarlínunni í gær.
Sölvi á hliðarlínunni í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Þór Jónasson innsiglaði sigurinn í gær. Hann hefur verið orðaður við Fram á láni.
Atli Þór Jónasson innsiglaði sigurinn í gær. Hann hefur verið orðaður við Fram á láni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Kristinn var á dögunum orðaður við Víking.
Jóhannes Kristinn var á dögunum orðaður við Víking.
Mynd: Kolding
Þeir Valdimar Þór Ingimundarson, Aron Elís Þrándarson og Oliver Ekroth eru mikilvægir hlekkir í liði Víkings. Þeir voru ekki með liðinu gegn Þrótti í gær, hafa glímt við meiðsli. Fimm Víkingar voru þá úti með A-landsliðinu sem mætti Mexíkó í nótt, svo stóra pósta vantaði í liðið.

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari liðsins, var spurður út í stöðuna á þeim eftir sigurinn á Þrótti í gær.

„Það er tími til þess að fara varlega núna og við þurfum að fara varlega með það. Þeir ættu að fara skríða saman á næstu vikum, allir þrír. Sveinn Margeir er alltaf að taka skref upp á við, Daði Berg er búinn með sína aðgerð og byrjaður að labba eðlilega. Þetta tekur sinn tíma, en þau eru ekki alvarleg og þeir eru allir á leiðinni til baka," sagði Sölvi.

Tvær endurkomur á völlinn
Tveir sem hafa verið meiddir komu við sögu í gær, þeir Erlingur Agnarsson og Atli Þór Jónasson. Atli innsiglaði sigurinn með marki í lokin.

„Virkilega gaman að sjá þá, þeir komu vel inn í leikinn og gleðitíðindi fyrir þá að vera mættir til baka eftir leiðinleg meiðsli. Það er alltaf gaman að vera kominn á þann stað að geta spilað aftur. Við erum sáttir með þeirra innkomu."

Borgar sig að vera með góðan og breiðan hóp
Býst Sölvi við því að styrkja hópinn frekar fyrir mót?

„Við eigum eftir að sjá til, við erum með stóran og breiðan hóp, þurfum það til þess að slást um alla titlana og komast í Evrópu. Það hefur sýnt sig síðustu ár að það borgar sig að vera með góðan hóp. Þegar við lendum í Evróputörninni þá á til að verða mikið um meiðsli. Við munum hafa augun opin ef það eru spennandi bitar í boði."

Orðaðir við Jóa Bjarna
Víkingar voru orðaðir við Jóhannes Kristin Bjarnason, leikmann Kolding, í tengslum við möguleg félagaskipti Valdimars Þórs Ingimundarsonar til Kalmar. Valdimar hafnaði Kalmar og er áfram leikmaður Víkings. En er þessi saga rétt?

„Ég get ekki beint tjáð mig um það, Kári (Árnason, yfirmaður fótboltamála) sér alfarið um þessi viðskipti, hversu langt það fór eða hversu mikið samtal það var veit ég ekki," sagði Sölvi.
Athugasemdir
banner
banner
banner