Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
   fös 27. febrúar 2026 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ekitike fengið gagnrýni og vill bæta þennan hluta leiksins
Mynd: EPA
Hugo Ekitike, framherji Liverpool, hefur verið gagnrýndur fyrir skallatækni sína. Hann hefur fengið góð skallafæri að undanförnu en ekki náð að nýta þau. Stuðningsmenn Liverpool hafa gagnrýnt hann fyrir klúðrin.

Arne Slot, stjóri Liverpool, tjáði sig um Frakkann í dag.

„Þegar ég spilaði fyrir löngu síðan vorum við með bolta í bandi og skölluðum hann til að vinna í tækninni. Það er ekki gert núna," segir Slot.

„Við höfum tekið eftir þessu og Hugo líka og þess vegna erum við að vinna í þessu. Það er ekki á hverjum degi, en þetta er hluti af hans leik og hann vill líka þróa sinn leik til að bæta við nokkrum mörkum. Það er venjulegt að það séu hlutir sem þú vilt bæta í leik þínum þegar þú ert 22-23 ára gamall," bætti Hollendingurinn við.



Athugasemdir
banner
banner