Gleðilega helgi kæru lesendur. Grípið ykkur kaffibolla og kíkið á það helsta í slúðrinu þennan laugardaginn.
Manchester City og Manchester United munu berjast um að kaupa Elliot Anderson (23) frá Nottingham Forest. Bæði félög hafa sett miðjumanninn efstan á óskalista sinn fyrir sumarið. (Mirror)
Inter Milan sýndi Curtis Jones (25), miðjumanni Liverpool, áhuga í janúar og munu reyna aftur við hann í sumar. (Corriere dello Sport)
Aston Villa leiðir kapphlaupið um James Trafford (23), markvörð Manchester City. Leeds, Newcastle, Tottenham og West Ham eru einnig að fylgjast með stöðu mála. (Teamtalk)
Michael Carrick, sem stýrir Manchester United til bráðabirgða, hefur gefið í skyn að Harry Maguire (32) verði boðinn nýr samningur. (Guardian)
Diego Simeone, stjóri Atletico Madrid, segist ekki vita hvað muni gerast með Antoine Griezmann (34) en hann hefur sterklega orðaður við Orlando í Bandaríkjunum. (ESPN)
Deco, yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona, segir að engar viðræður hafi átt sér stað um Julian Alvarez (26), framherja Atletico Madrid. (Mirror)
Liverpool ætlar ekki að selja markvörðinn Alisson (33) í sumar þrátt fyrir að hann hafi verið orðaður við ítalska félagið Inter. (Football Insider)
Kellen Fisher (21), varnarmaður Norwich, er á lista hjá nokkrum félögum í ensku úrvalsdeildinni og þar á meðal Everton. (Teamtalk)
Tino Livramento (23), bakvörður Newcastle, hefur áhuga á því að skoða í kringum sig í sumar ef félag í hæsta gæðaflokki sýnir honum áhuga. Hann hefur verið orðaður við Manchester City. (Telegraph)
Chelsea hefur trú á því að Cole Palmer (23) og aðrir toppleikmenn liðsins verði ekki seldir þrátt fyrir að félagið hafi tapað 355 milljónum punda 2024-25 tímabilið. (Standard)
Athugasemdir



