Sjö vikur eru frá því að Ruben Amorim var rekinn úr starfi hjá Manchester United eftir rúmt ár í starfi hjá enska félaginu.
Hann er orðaður við stjórastöðuna hjá Vasoo da Gama í Brasilíu en Fernando Diniz var rekinn frá félaginu á dögunum. Fyrr í þessari viku var sagt frá því að ráðamenn brasilíska félagsins ætli sér að vera búnir að ráða nýjan stjóra fyrir næsta sunnudag.

Það eru fjölmiðlar í Brasilíu sem greina frá. VDG-Cast segir að Amorim sé á óskalista félagsins. Amorim kom til United eftir að hafa gert flotta hluti í Portúgal með Sporting CP.
Vasco da Gama situr í 17. sæti brasilísku deildarinnar með einungis eitt stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar.
Renato Gaúcho, 63 ára fyrrum landsliðsmaður Brasilíu, þykir líklegasti kosturinn til að taka við Vasco da Gama en hann stýrði liðinu 2005-07 og afur 2008. Hann var síðast hjá Fluminense í fyrra. Artur Jorge, 54 ára Portúgali, hefur einnig verið orðaður við Vasco en hann er stjóri Al-Rayyan í Katar.
Athugasemdir