Síðustu leikjum kvöldsins er lokið í Lengjubikarnum og hafa úrslit og markaskorarar borist úr B- og C-deildum kvenna.
Haukar fóru létt með Selfoss í eina leik kvöldsins í B-deildinni. Halla Þórdís Svansdóttir setti tvennu og skoraði Ragnheiður Tinna Hjaltalín eitt mark í þægilegum 3-0 sigri.
Haukar eru þá með þrjú stig eftir tvær fyrstu umferðirnar á meðan Selfoss er stigalaust á botninum eftir að hafa spilað þrjá leiki.
Í C-deildinni skildu Fjölnir og Fylkir jöfn 4-4 eftir mikla skemmtun þar sem Fylkir þurfti að jafna leikinn í þrígang til að bjarga stigi.
Stelpur beggja liða skiptu mörkunum afar systurlega á milli sín þar sem átta mismunandi markaskorarar komust á blað í kvöld.
Fjölnir leiddi 2-1 eftir fyrri hálfleik en Fylkir náði að bjarga stigi með tveimur mörkum á lokakaflanum.
Fylkir er með fjögur stig eftir tvær umferðir en þetta var fyrsti leikur Fjölnis í Lengjubikarnum.
Haukar 3 - 0 Selfoss
1-0 Halla Þórdís Svansdóttir ('30)
2-0 Ragnheiður Tinna Hjaltalín ('55)
3-0 Halla Þórdís Svansdóttir ('59)
Fjölnir 4 - 4 Fylkir
1-0 María Sól Magnúsdóttir ('14)
1-1 Harpa Karen Antonsdóttir ('15)
2-1 Ester Lilja Harðardóttir ('23)
2-2 Eva Stefánsdóttir ('52)
3-2 Aníta Björg Sölvadóttir ('61)
4-2 Kristjana Rut Davíðsdóttir ('78)
4-3 Hildur Anna Brynjarsdóttir ('86)
4-4 Signý Lára Bjarnadóttir ('89)
Athugasemdir


