Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
   fös 27. febrúar 2026 22:48
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Levante vann eftir afar fjörugan slag
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Levante 2 - 0 Alaves
1-0 Carlos Espi ('89)
2-0 Carlos Espi ('97)
Rautt spjald: Victor Parada, Alaves ('61)

Sex stiga fallbaráttuslagur á milli Levante og Alavés bauð upp á furðu mikla skemmtun í spænska boltanum í kvöld.

Það er hreint ótrúlegt að hvorugu liði hafi tekist að skora í gríðarlega opnum fyrri hálfleik þar sem mátti finna magnaðar markvörslur, ótrúleg klúður og marklínubjarganir.

Alavés var hættulegra liðið í fyrri hálfleik en heimamenn í liði Levante skiptu um gír í seinni hálfleik og voru sterkari aðilinn frá upphafsflautinu. Þeir áttu stangarskot áður en Victor Parada, leikmaður Alavés, lét reka sig af velli þegar hann fékk seinna gula spjaldið sitt fyrir heldur litlar sakir. Þjálfari Alavés var mjög ósáttur að leikslokum og kenndi dómaranum um að hafa eyðilagt þennan frábæra fótboltaleik.

Levante fékk nokkur góð færi en Alavés tókst að halda markinu hreinu allt þar til á lokamínútunum, þegar Carlos Espí tók til sinna ráða. Hann skoraði fyrst umdeilt heppnismark eftir fyrirgjöf þar sem boltinn datt fyrir hann eftir líkamlegt slagtog við varnarmann Alavés. Skot hans fór af öðrum varnarmanni og breytti um stefnu svo boltinn sveif yfir markvörðinn og í stöngina og inn.

Tíu leikmenn Alavés blésu þá til sóknar en Espí refsaði þeim með að innsigla sigurinn eftir skyndisókn seint í uppbótartíma, svo lokatölur urðu 2-0 eftir afar fjörugan slag.

Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur fyrir Levante sem er í næstneðsta sæti með 21 stig eftir 26 umferðir, fjórum stigum frá öruggu sæti.

Alavés er með 27 stig, þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Athugasemdir
banner
banner