Kantmaðurinn Tumi Þorvarsson verður hjá HK út næsta ár en hann skrifaði undir samning þess efnis í gær.
Tumi, sem er tvítugur, hefur spilað 59 leiki með HK og skorað sjö mörk.
Hann er uppalinn HK-ingur og verið í mjög stóru hlutverki hjá meistaraflokki undanfarin ár.
Á síðasta ári skoraði hann fimm mörk er HK komst alla leið í úrslit Lengjudeildarumspilsins.
Tumi ætlar að halda tryggð við HK og hefur staðfest það með nýjum samningi sem gildir út 2027. Hann mun því að minnsta kosta leika tvö tímabil í viðbót með uppeldisfélaginu.
Frábærar fréttir fyrir HK sem ætlar að gera aðra tilraun í sumar til þess að komast aftur upp í Bestu.
Athugasemdir




