Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
banner
   fös 27. febrúar 2026 18:00
Elvar Geir Magnússon
Rooney rifjar upp þegar hann fékk furðulega gjöf frá Maradona á kínverskum veitingastað
Rooney og Maradona, með bindið, á hinum sívinsæla Wing's.
Rooney og Maradona, með bindið, á hinum sívinsæla Wing's.
Mynd: X
Wayne Rooney rifjaði það upp í þætti sínum á BBC þegar hann rakst óvænt á goðsögnina Diego Maradona á kínverskum veitingastað í Manchesterborg árið 2013.

Rooney mætti í íþróttafötum á Wing's, stað sem er í miklu uppáhaldi hjá honum, og var pirraður yfir því að hafa þurft að verma varamannabekkinn hjá Sir Alex Ferguson.

„Hann var klæddur í jakkafötum og með bindi, svo gaf hann mér bindið sitt. Hann tók það af sér og setti á mig, þegar ég var klæddur í íþróttaföt," segir Rooney.

Á þessum tíma var Maradona reglulega í Manchester enda var dóttir hans gift Sergio Aguero sem þá var sóknarmaður Manchester City. Rooney geymdi bindið fræga og á það enn heima hjá sér.

„Þetta var skrítin stund, ég var vel pirraður eftir leikinn og þurfti að fá mér nokkur vínglös. Það kom allavega eitthvað gott úr kvöldinu. Ég fékk bindi Maradona."

Þegar Maradona lést 2020 sagði Rooney að hann væri besti fótboltamaður sögunnar að sínu mati.


Athugasemdir
banner
banner