Franski miðvörðurinn Kurt Zouma er búinn að finna sér nýtt félag en hann er að semja við Al Wasl í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en þetta segir Fabrizio Romano á X.
Þessi 31 árs gamli varnarmaður rifti við rúmenska félagið Cluj á dögunum aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa gert tveggja ára samning með möguleika á tveimur árum til viðbótar.
Zouma yfirgaf West Ham á síðasta ári en hann hefur flakkað á milli landa síðan. Hann spilaði með Jóhanni Berg Guðmundssyni hjá Al Orubah og fór þaðan til Cluj.
Frakkinn er farinn aftur til Mið-Austurlandanna en hann er að semja við Al Wasl. Romano segir viðræður komnar langt á veg.
Milo Milojevic, fyrrum þjálfari Breiðabliks og Víkings, var þjálfari Al Wasl frá 2023 til 2025. Portúgalinn Rui Vitoría tók við liðinu í byrjun þessa árs.
Al Wasl er eitt af bestu liðum Sameinuðu arabísku furstadæmanna og er sem stendur í 4. sæti deildarinnar með 30 stig.
Athugasemdir



