Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 06:00
Kári Snorrason
Mikil ánægja meðal þjálfara úr háskólaboltanum með Soccer & Education USA Showcase
Leikmenn öttu kappi í Miðgarði.
Leikmenn öttu kappi í Miðgarði.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Helgina 7.- 8. febrúar hélt Soccer & Education USA Showcase í Miðgarði. Þetta var tíunda árið í röð sem þessi viðburður er haldinn og fengu leikmenn tækifæri til að spila fyrir framan fjölda allan af bandarískum háskólaþjálfurum.

Meðal skóla sem mættu voru til dæmis UCLA, UNC Chapel Hill, Notre Dame, Vermont, Penn State, Wake Forest, Ohio State og Virginia Tech. Frábært tækifæri fyrir leikmennina að sýna sig og sanna.

Leikirnir voru jafnframt teknir upp og sendir út á alla skóla í háskólaboltanum. Þjálfararnir voru heillaðir af íslensku leikmönnunum og hafa þó nokkrir leikmenn sem spiluðu í leikjunum nú þegar fengið boð um styrki. Sumir hverjir hafa samþykkt þau boð frá þeim skólum sem mættu á Showcase.


Athugasemdir
banner
banner
banner