Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 20:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Æfingaleikur: Tvö rauð spjöld í sigri lærisveina Heimis
Nathan Collins skoraði sigurmarkið
Nathan Collins skoraði sigurmarkið
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Írland 1 - 0 Katar
1-0 Nathan Collins ('5 )
Rautt spjald: ,Jack Moylan, Ireland ('45)Almoez Ali, Qatar ('78)

Írland fékk Katar í heimsókn í æfingaleik í kvöld. Heimir Hallgrímsson er þjálfari írska liðsins en liðinu tókst ekki að vinna sér sæti á HM eftir tap gegn Tékklandi í umspili.

Katar er hins vegar í lokaundirbúningi fyrir mótið þar sem liðið mætir Sviss, Kanada og Bosníu í riðliakeppninni. Fyrsti leikur liðsins er gegn Sviss þann 13. júní.

Nathan Collins kom Írlandi yfir í kvöld þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Jack Moylan.

Írland byrjaði seinni hálfleikinn manni færri þar sem Moylan fékk rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks fyrir brot á Jassem Gaber.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð tíðindalítill en það dró til tíðinda á 78. mínútu þegar Almoez Ali var rekinn af velli fyrir að slá Jayson Molumby í andltiið. Það var því jafnt í liðum síðustu mínúturnar en mörkin uðru ekki fleiri.

Írland heimsækir Kanada þann 5. júní en Katar mætir El Salvador í Bandaríkjunum þann 6. júní sem verður síðasti leikur liðsins fyrir HM.
Slapp
banner
banner