Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 09:49
Kári Snorrason
Kudus fer ekki með Ganverjum á HM
Fagnar marki með Gana.
Fagnar marki með Gana.
Mynd: EPA
Mohammed Kudus var ekki valinn í 28 manna forhóp Ganverja fyrir komandi heimsmeistaramót.


Kudus, sem leikur með Tottenham, hefur glímt við meiðsli síðan í janúar og var upphaflega talið að hann gæti snúið aftur í mars.

Hann hefur hins vegar fengið bakslag í endurhæfingu og hefur ekki spilað síðan Thomas Frank var að þjálfa Spurs.

Gana, undir stjórn Portúgalans Carlos Queiros, treystir nú meðal annars á Antoine Semenyo og Inaki Williams. Liðið er í L-riðli ásamt Króatíu, Englandi og Panama.

Slapp
banner
banner