Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 09:15
Fótbolti.net
Lið og leikmaður 6. umferðar - Fyrsti sigurinn með pomp og prakt
Lengjudeildin
Adeyemo er leikmaður umferðarinnar.
Adeyemo er leikmaður umferðarinnar.
Mynd: Ægir
Gummi Tyrfings.
Gummi Tyrfings.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Aron Elí Sævarsson.
Aron Elí Sævarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sjötta umferðin í Lengjudeildinni var öll leikin á einu bretti í gær og óhætt að segja að úrslitin í nokkrum leikjum hafi verið mjög áhugaverð. Nýliðar deildarinnar fögnuðu báðir sigrum

LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Jordan Adeyemo - Ægir
Ægismenn unnu sinn fyrsta sigur í deildinni þegar þeir rúlluðu yfir ÍR 4-1 í Þorlákshöfn. Adeyemo skoraði tvö mörk og það eru góðar fréttir fyrir Ægismenn að hann sé kominn í gang. Raðaði inn mörkum fyrir liðið þegar það komst upp úr 2. deildinni í fyrra.



Ómar Castaldo Einarsson markvörður Ægis er einnig í úrvalsliðinu og Nenad Zivanovic er þjálfari umferðarinnar.

Reyndar gat dómnefnd ekki valið á milli þjálfara og er Rúnar Páll Sigmundsson hjá Gróttu því einnig valinn þjálfari umferðarinnar. Liðið vann glæsilegan 3-2 útisigur gegn Þrótti þar sem hinn 16 ára gamli Mattías Kjeld skoraði sigurmarkið og er aftur í liði umferðarinnar. Andri Freyr Jónasson á flandri skoraði hin tvö mörk Gróttu.

Fylkir er á toppnum en liðið vann 3-0 sigur gegn Leikni. Guðmundur Tyrfingsson skoraði tvö mörk og var valinn maður leiksins. Öflugt fyrir Árbæinga að hann sé kominn í gang eftir meiðsli. Orri Sveinn Segatta er í vörn úrvalsliðsins.

Afturelding er á flugi og Bart Kooistra var valinn maður leiksins í 3-1 útisigri gegn Grindavík. Aron Elí Sævarsson er einnig í liði umferðarinnar en Mosfellingar hafa unnið fjóra leiki í röð og eru nú í öðru sæti.

HK, sem er í þriðja sæti, vann nauman 1-0 sigur á Völsungi. Sigurður Gunnar Jónsson var besti maður HK-inga í Kórnum.

Njarðvíkingar gerðu frábæra ferð á Ísafjörð og unnu 3-0 útisigur gegn Vestra. Bragi Karl Bjarkason skoraði tvö mörk og Freysteinn Ingi Guðnason eitt.

Fyrri úrvalslið:
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Fylkir 6 5 0 1 11 - 3 +8 15
2.    Afturelding 6 4 1 1 17 - 12 +5 13
3.    HK 6 4 0 2 13 - 9 +4 12
4.    Þróttur R. 6 3 1 2 14 - 9 +5 10
5.    Grótta 6 3 0 3 12 - 14 -2 9
6.    Njarðvík 6 2 2 2 5 - 4 +1 8
7.    Grindavík 6 1 4 1 7 - 7 0 7
8.    ÍR 6 2 1 3 15 - 16 -1 7
9.    Vestri 6 2 1 3 10 - 15 -5 7
10.    Leiknir R. 6 1 3 2 4 - 9 -5 6
11.    Ægir 6 1 1 4 6 - 9 -3 4
12.    Völsungur 6 0 2 4 2 - 9 -7 2
Slapp
banner