Róbert Frosti Þorkelsson er orðinn fastamaður í liði GAIS nú í upphafi tímabils eftir að hafa verið í takmörkuðu hlutverki á síðasta tímabili.
Af fyrstu tíu leikjum GAIS í deildinni hefur Frosti komið við sögu í níu þeirra, þar af byrjað átta ásamt því að hafa komið að þremur mörkum.
Fótbolti.net ræddi við Frosta um upphafið á tímabilinu og lífið í Svíþjóð.
Af fyrstu tíu leikjum GAIS í deildinni hefur Frosti komið við sögu í níu þeirra, þar af byrjað átta ásamt því að hafa komið að þremur mörkum.
Fótbolti.net ræddi við Frosta um upphafið á tímabilinu og lífið í Svíþjóð.
Erfitt en skemmtilegt fyrsta ár
„Tímabilið hefur farið vel af stað. Ég er búinn að spila mikið og ná inn tveimur mörkum þannig að ég er bara sáttur,” segir Róbert.
Róbert gekk til liðs við GAIS í janúar á síðasta ári. Á fyrsta tímabili sínu í Svíþjóð kom hann aðeins við sögu í þremur leikjum í deild.
„Síðasta ár var erfitt og ég spilaði lítið sem ekkert en á sama tíma var þetta mjög skemmtilegt ár og ég náði að nýta tímann vel í að laga hluti sem þurfti að laga og bæta mig sem leikmann. Það breytist svo sem ekkert mikið, ég kom inn í undirbúningstímabilið og var góður og fékk sénsa og nýtti þá vel.”
Hafði engan áhuga á að koma heim
Róbert segir það ekki hafa verið inni í myndinni að snúa aftur heim í vetur eftir erfitt fyrsta ár úti í Svíþjóð.
„Nei, það kom aldrei til tals og ég hafði engan áhuga á því.“
Hefur breyst og þróast
„Þjálfarinn og teymið er frábært. Það hafa allir mikla trú á mér, hafa gert mig að miklu betri leikmanni og alltaf sýnt mér mikla trú. Þau leggja áherslu á hluti sem mér finnst skipta máli og svo er mikil áhersla á að spila skemmtilegan fótbolta.“
Róbert segir hann hafa breyst töluvert sem leikmaður frá því að hann lék í Bestu deildinni fyrir tæpum tveimur árum.
„Ég er aðallega á miðjunni en ég er búinn að spila á kantinum líka. Já, ég myndi segja að ég væri búinn að breytast mikið sem leikmaður. Ég er búinn að læra mikið og bæta það sem þurfti að bæta og er búinn að þróa leikinn minn mikið.“
„Ég vill bara fá það mesta út úr þessu tímabili, spila eins mikið og ég get og hjálpað liðinu með mörkum og stoðsendingum og í leiðinni halda áfram að bæta minn leik,“ segir Frosti jafnframt.
Geðveikt í Gautaborg og sænskan að koma til
Hvernig er lífið í Svíþjóð að fara með þig?
„Lífið í Svíþjóð er frábært, ég bý með kærustunni og það er geðveikt að búa í Gautaborg. Ég er lítið byrjaður að tala sænsku en skil mikið. Svo förum við útlendingarnir í sænsku tíma einu sinni í viku þannig þetta fer að koma,“ segir Róbert að lokum.


