Davide Ancelotti er kominn með samkomulag með franska félaginu Lille um að taka við sem næsti stjóri liðsins.
Davide er 36 ára Ítali og er sonur hins sigursæla þjálfara, Carlo Ancelotti. Davide hefur aðstoðað föður sinn hjá Real Madrid, Bayern München, Napoli, Everton og nú síðast hjá brasilíska landsliðinu.
Þá stýrði hann jafnframt brasilíska liðinu Botafogo í 33 leikjum í fyrra.

Lille endaði í 3. sæti í Ligue 1 á síðustu leiktíð og verður því með í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.
Þrátt fyrir það var ákveðið að segja skilið við Bruno Genesio sem hafði stýrt liðinu í tvö ár.
Varafyrirliði landsliðsins, Hákon Haraldsson, er lykilmaður í liði Lille en hann skoraði átta mörk í 32 leikjum í Ligue 1 á síðasta tímabili.