Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 09:00
Kári Snorrason
Höttur dregur sig úr Fótbolti.net bikarnum
Gegn Þrótti Vogum í fyrra.
Gegn Þrótti Vogum í fyrra.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Höttur hefur eftir mikla umhugsun ákveðið að draga sig úr Gatorade-bikarnum, bikarkeppni neðri deilda sem haldin er í samstarfi við Fótbolta.net.

Höttur hefði átt að spila gegn Haukum í keppninni í dag, en ekkert verður af þeim leik.

„Þar sem ekki var hægt að bóka flug fyrir bikarleiki með sama fyrirvara og tíðkast vegna deildarleikja var áætlaður kostnaður vegna flugs og bílaleigubíla um 1,3 milljónir króna. Þar sem leikurinn var á kvöldi um miðja viku hefði jafnframt bæst við vinnutap og gisting fyrir leikmenn og þjálfara. Heildarkostnaður vegna leiksins hefði því numið að lágmarki 1,5–1,8 milljónum króna,” segir í tilkynningu Hattar en í henni segir jafnframt að ákvörðunina megi rekja til ágreinings um skiptingu ferðakostnaðar vegna bikarleiks síðasta sumar.

„Sjálfboðaliðar í stjórn félagsins hafa hvorki tíma né orku til að standa í innheimtu vegna kostnaðar og telur stjórn Rekstrarfélagsins eðlilegt að KSÍ hafi milligöngu um uppgjör og greiðslur í stað þess að félög þurfi sjálf að standa í slíkum málum sín á milli.Rétt er að taka fram að Haukar bera enga ábyrgð á þessari ákvörðun stjórnar, en sýndu henni þó skilning.”

Slapp
banner
banner