Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 23:55
Brynjar Ingi Erluson
Fyrstur í sögunni til að vinna tvær Evrópukeppnir á sama tímabili
Evann Guessand vann tvo Evróputitla á tímabilinu
Evann Guessand vann tvo Evróputitla á tímabilinu
Mynd: EPA
Fílabeinsstrendingurinn Evann Guessand skrifaði sig í sögubækurnar í kvöld er hann vann Sambandsdeildina með Crystal Palace, en hann er fyrsti leikmaðurinn í sögunni til að vinna tvær Evrópukeppnir á sama tímabili.

Þessi 24 ára gamli leikmaður spilaði fyrri hluta tímabilsins með Aston Villa.

Hann spilaði 7 leiki og skoraði 2 mörk í deildarkeppni Evrópudeildarinnar, en var síðan lánaður til Palace í janúarglugganum.

Guessand lék 6 leiki og skoraði 1 mark með Palace í Sambandsdeildinni og lyfti síðan bikarnum í kvöld.

Aston Villa vann Evrópudeildina á dögunum og fékk Guessand medalíu fyrir árangur félagsins í keppninni sem gerir hann að fyrsta leikmanninum til að vinna tvær Evrópukeppnir á sömu leiktíðinni.

Palace getur gert skiptin á Guessand varanleg í sumar fyrir 28 milljónir punda, en ekki er ljóst hvort félagið muni nýta sér ákvæðið.


Slapp
banner