Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   fim 28. maí 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Dreymir um að spila í ensku úrvalsdeildinni
Mynd: EPA
Spænski bakvörðurinn Oscar Mingueza vill semja við félag í ensku úrvalsdeildinni í sumar en þetta herma heimildir Sky Sports.

Varnarmaðurinn fjölhæfi er á blaði hjá mörgumfélögum á Englandi.

Hann var orðaður við Arsenal snemma á árinu, en ekki er talið að hann sé lengur í myndinni hjá Englandsmeisturunum.

Mingueza, sem er á mála hjá Celta Vigo, verður samningslaus í næsta mánuði, en félög á borð við Aston Villa og Newcastle United eru sögð hafa áhuga á að fá hann.

Toppliðin á Ítalíu og Spáni eru einnig sögð fylgjast náið með stöðu Mingueza, sem er 27 ára gamall og með 4 A-landsleiki á bakinu.
Slapp
banner
banner
banner