Adam Wharton var maður leiksins er Crystal Palace varð Sambandsdeildarmeistari í kvöld, en hann hefur verið örlítið óheppinn þegar kemur að því að fagna titlum félagsins.
Á síðasta ári fékk Wharton heilahristing er Palace varð enskur bikarmeistari. Hann missti af fögnuðinum og man í raun ekkert eftir þeim leik.
Í kvöld átti hann stórkostlega frammistöðu er Palace vann sinn fyrsta Evróputitil.
Wharton er ánægður að geta munað eftir þessum leik og fagnaðarlátunum sem framundan eru.
„Ég missti af fagnaðarhöldunum í enska bikarnum á síðasta ári þannig ég ætla klárlega að bæta upp fyrir það í ár. Það er ekki hægt að koma þessu í orð. Þetta er ótrúlegt. Þú getur séð hvað þetta er þýðingarmikið fyrir suður London.“
„Við vissum að það yrði erfitt að brjóta þá niður. Þetta er mjög vel 'drillað' lið. Þeir leggja hart að sér og eru eitt ákafasta liðið í La Liga. Þetta var svolítið lokað í byrjun leiks, eins og vaninn er í úrslitaleikjum, en við unnum okkur inn í þetta og fundum lausu svæðin og nýttum okkur þau. Við hefðum átt að skora fleiri mörk og loka leiknum sem hefði gert þetta aðeins þægilegra fyrir stuðningsmennina, en við kláruðum dæmið,“ sagði Wharton.
Það eina sem skemmir fyrir hjá Wharton er að UEFA henti honum í lyfjapróf eftir leikinn sem þýðir að hann fékk aðeins að fagna í skamma stund áður en hann fór í það verkefni. Hann segir það skemma fyrir.
„Þetta verður risapartí. Ég missti af fögnuðinum í enska bikarnum á síðasta ári þannig ég á tvö teiti inni. Ég þarf reyndar því miður að fara í lyfjapróf sem skemmir aðeins fyrir, en vonandi get ég klárað það sem fyrst og farið beint í bjórinn,“ sagði Wharton sem hrósaði síðan Oliver Glasner, stjóra félagsins, í hástert.
„Síðasti leikur hans sem stjóri Palace. Það sem hann hefur skipt sköpum á þessum tíma. Þrír titlar fyrir Palace og þrír fyrstu í sögu félagsins. Fyrsta sinn í Evrópukeppni og vann þann titil. Það er ótrúlegt. Hann er örugglega einn besti stjóri í sögu Palace. Hann hefur breytt því hvernig félagið horfir á keppnirnar. Við ætlum ekki bara að vera áfram í ensku úrvalsdeildinni og í Evrópukeppnum, heldur munum við reyna að vinna og enda eins ofarlega og mögulegt er,“ sagði Wharton.

