KR-ingurinn Alexander Rafn Pálmason kom inn á sem varamaður í leik KR og Vals á þriðjudag en náði einungis að spila rúmlega korter áður en hann meiddist eftir návígi við Valsarann Albin Skoglund. Alexander var svo studdur af velli vegna meiðslanna.
Lestu um leikinn: KR 3 - 1 Valur
„Hann er búinn að fara í myndatöku, það er ekkert brotið og ekkert slitið. En hann tognaði illa og það verður að koma í ljós hvað það tekur langan tíma (fyrir hann að koma til baka)," segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, við Fótbolta.net í dag.
Fyrr í mánuðinum var Óskar spurður út í Alexander og hvort það væri möguleika á því að KR gæti haldið honum lengur en til 1. júlí. Danska félagið Nordsjælland gekk frá kaupum á þessum gríðarlega efnilega leikmanni síðasta haust og var sagt frá því að hann færi til Danmerkur í sumar.
„Samtalið hefur átt sér stað og hann er að fara út 1. júlí," segir Óskar.
Óskar segist þá búast við því að Ástbjörn Þórðarson, sem hefur misst af síðustu leikjum liðsins, verði klár eftir landsleikjahlé. KR mætir KA á sunnudag í Bestu deildinni og í kjölfarið taka við um tvær vikur án leikja.
„Ég myndi halda að Ástbjörn yrði klár strax eftir landsleikjahlé. Hann tognaði á liðbandi í hnénu og það tekur sinn tíma. Það er ekkert vit í því að reyna flýta því eitthvað. Það mikilvægasta er að hann fái sig góðan og ég ekki von á honum fyrr en eftir landsleikjahlé."




