Mikil óvissa ríkir nú um þáttöku Neymar á komandi heimsmeistaramóti eftir að hafa meiðst á kálfa.
Neymar gekkst undir rannsókn varðandi meiðslin í gær og hefur brasilíska fótboltasambandið lítið gefið upp stöðuna á leikmanninum.
Neymar gekkst undir rannsókn varðandi meiðslin í gær og hefur brasilíska fótboltasambandið lítið gefið upp stöðuna á leikmanninum.
Ljóst er þó að Neymar muni ekki taka þátt í síðustu æfingaleikjum liðsins fyrir HM sem hefst eftir sléttar tvær vikur.
Neymar er markahæsti leikmaður í sögu brasilíska landsliðsins en óvissa ríkti um hvort að Carlo Ancelotti myndi velja hann í lokahóp liðsins fyrir HM.
Þegar hann var valinn greindi Neymar sjálfur frá því í viðtali að hann hafi grátið úr gleði svo klukkutímum skipti.


