Ítalski miðillinn Gazzetta dello Sport greinir frá því að viðræður milli Inter og Liverpool um Curtis Jones gangi vel.
Forráðamenn félagana funduðu í gær en Liverpool er sagt vilja fá um 30 milljónir evra fyrir þennan enska miðjumann. Inter er hins vegar aðeins tilbúið að borga um 25 milljónir evra.
Forráðamenn félagana funduðu í gær en Liverpool er sagt vilja fá um 30 milljónir evra fyrir þennan enska miðjumann. Inter er hins vegar aðeins tilbúið að borga um 25 milljónir evra.
Þá vill Liverpool fá ákveðna prósentu af söluverði fyrir Jones en Inter vill halda því í lágmarki.
Jones er uppalinn hjá Liverpool og hefur spilað 228 leiki og skorað 22 mörk. Samningur hans við enska félagið rennur út næsta sumar.


