Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   fim 28. maí 2026 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Yildiz ósnertanlegur - Vilja halda Vlahovic áfram
Kenan Yildiz er ósnertanlegur
Kenan Yildiz er ósnertanlegur
Mynd: EPA
Ítalska félagið Juventus ætlar að reyna halda sem flestum áfram hjá félaginu en Damien Comolli, framkvæmdastjóri félagsins, viðurkennir að það þarf að skera niður kostnað í sumar.

Juventus rétt missti af Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð sem hefur gríðarleg fjárhagsleg áhrif á félagið.

Como og Roma tóku síðustu lausu sætin í Meistaradeildina og skildi Juventus eftir með sárt ennið.

Comolli segir að einhverjir leikmenn gætu þurft að yfirgefa félagið í sumar, en aðeins einn leikmaður er ósnertanlegur.

„Við gætum þurft að selja meira en við áttum von á þar sem við komumst ekki í Meistaradeildina. Við þurfum að safna fjármunum og skera niður kostnað.“

„En Kenan Yildiz er ósnertanlegur. Hann er framtíð félagsins og þá værum við líka til í að halda Dusan Vlahovic áfram hjá félaginu,“
sagði Comolli.

Yildiz er ekki bara framtíð Juventus heldur líka gulldrengur Tyrkja, en hann hefur verið orðaður við stærstu félög heims. Vlahovic er hins vegar að renna út á samningi, en hann hefur verið á mála hjá Juventus frá 2021.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner