Daniel Badu og hans menn fengu Njarðvík í heimsókn á Kerecis-völlinn fyrr í kvöld, Vestri tapaði leiknum 0:3.
Fótbolti.net ræddi við Badu eftir leikinn. Viðtalið við þjálfarann má sjá í heild sinni í spilaranum efst.
Lestu um leikinn: Vestri 0 - 3 Njarðvík
Vestraliðið mætti illa inn í leikinn, hver er ástæðan fyrir því?
„Ég er ekki sammála af því , við gerðum mjög kjánaleg mistök sem var ástæðan fyrir mörkunum, í fyrsta markinu vorum við einum færri með meiddan leikmann utan vallar og illa skipulagðir. Við mættum ekki illa í leikinn heldur brugðumst við illa við því þegar hlutirnir fóru illa."
Badu talar um að þeir brugðust illa við mótlæti, er ástæðan fyrir því að þið bregðist illa við mótlæti metnaðarleysi hjá liðinu?
„Mér finnst það ekki vera ástæðan nei. Mér finnst að í öllum leikjum sem við höfum lent undir í höfum við náð að koma til baka. Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi, hún er frekar sú að þegar við tökum lélegar ákvarðanir og gerum kjánaleg mistök þá gerum við leikina erfiðari fyrir okkur sjálfa."






















