ÍR spilaði gegn Ægir í Þorlákshöfn í kvöld. Eftir bragðdaufan 0-0 fyrri hálfleik komu heldur betur mörkin í þeim seinni. En ÍR liðið tapaði fyrir heimamönnum 4-1.
Leikurinn var partur af 6.umferð Lengjudeildarinnar. Jóhann Birnir þjálfari ÍR hafði þetta að segja eftir lokaflautið.
Lestu um leikinn: Ægir 4 - 1 ÍR
„Gríðarlegt svekkelsi, engan veginn nægilega gott og verðskuldaður sigur (Ægismanna)."
„Þannig séð jafn leikur, við bara gefum hérna mörk. Einstaklings mistök, en hrós á þá (Ægir). Þeir voru vel skipulagðir og hættulegir í skyndisóknum. Við náðum ekki að gera neitt að ráði og vorum hálf máttlausir."
ÍR liði hefur byrjað mótið sveiflukennt, en eftir 7-4 sigur á Aftureldingu í Mosfellsbæ hefur liðið tapað öllum þremur útileikjum og skorað eitt mark í hverjum. Inn á milli eru jafntefli og sigur í heimaleikjum.
„Við skoruðum sjö í fyrsta útileiknum, þannig ég hef ekki miklar áhyggjur af því. Ég hef nú bara áhyggjur af því að við spiluðum mjög góðan leik á móti HK í síðustu umferð og eigum síðan svona lélegan leik strax á eftir. Kannski eitthvað kæruleysi hjá öllum held ég."
Framundan er heimaleikur gegn Vestra strax á Sunnudaginn næstkomandi. „Sem betur fer er hann strax á Sunnudaginn, bæði lið þurfa að rífa sig upp, þetta er bara hluti af leiknum, við þurfum að bregðast við svona."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
























