Kylian Mbappe, framherji Real Madrid á Spáni, var valinn besti leikmaður félagsins annað árið í röð.
Frakkinn skoraði 42 mörk í öllum keppnum með Madrídingum og var markahæsti leikmaður La Liga.
Tölfræðin leit vel út hjá honum þó árangur félagsins hefur verið arfaslakur síðustu tvö tímabil.
Real Madrid hefur ekki unnið einn stóran titil síðan Mbappe gekk í raðir félagsins frá Paris Saint-Germain fyrir tveimur árum.
Mbappe heldur samt áfram að sanka að sér einstaklingsverðlaunum, en hann hefur nú verið krýndur sem besti leikmaður Real Madrid annað árið í röð.
Á þessum tveimur árum hefur hann skorað 86 mörk í 103 leikjum og gefið 12 stoðsendingar.
????? OFFICIAL: Kylian Mbappé wins Real Madrid Player of the Season 2025/26. pic.twitter.com/rPPWyuM5lp
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 27, 2026




