Massimiliano Allegri verður næsti stjóri Napoli en Sky á Ítalíu greinir frá því að hann sé búinn að samþykkja tveggja ára samning.
Antonio Conte yfirgaf Napoli eftir tímabilið eftir að hafa stýrt liðinu í 2. sæti deildarinnar og þá átti hann eitt ár eftir af samningi sínum.
Antonio Conte yfirgaf Napoli eftir tímabilið eftir að hafa stýrt liðinu í 2. sæti deildarinnar og þá átti hann eitt ár eftir af samningi sínum.
Allegri stýrði Milan á nýliðnu tímabili en það voru mikil vonbrigði. Liðið missti af Meistaradeildarsæti eftir tap gegn Cagliari í lokaumferðinni.
Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli, er hins vegar mjög hrifinn af honum þar sem Allegri hefur unnið deildartitla með Milan og Juventus á ferlinum.
Allegri á eftir að klára einhver minniháttar atriði hjá Milan svo hann losni þaðan og geti formlega skrifað undir hjá Napoli



