Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 11:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna seinkað um 50 daga
Kvenaboltinn
Blikar fögnuðu á Laugardalsvelli í fyrra.
Blikar fögnuðu á Laugardalsvelli í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mótanefnd KSÍ hefur opinberað breytingar á Bestu deild kvenna og Mjólkurbikar kvenna vegna þátttöku U19 landsliðs kvenna í lokakeppni EM í sumar.

Undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna hefur verið seinkað um tæpar þrjár vikur og úrslitaleikurinn fer svo fram sjö vikum seinna en áætlað var.

Þá voru gerðar breytingar á tveimur umferðum í Bestu deild kvenna; á tíundu og elleftu umferð mótsins. Tíunda umferðin færist aftur fyrir 18. umferð og fer fram dagana 6. og 7. september. Ellefta umferðin fer annað hvort fram 9. júlí en ef U19 landsliðið kemst áfram úr riðlinum á EM þá verður spilað 12. júlí. Ef Ísland leikur til úrslita um gullið, þá mun koma til frekari breytinga.

Þá er ljóst að deildinni lýkur seinna en áætlað var. Eftri hluti átti að klárast 3./4. október en eftir breytingar mun lokaumferðin fara fram 24. október. Neðri hluta átti að ljúka 19. september en spilað verður til 3. október.

Mjólkurbikar kvenna
Undanúrslit keppninnar fara nú fram 24. júlí, en ekki 4.-5. júlí.
Úrslitaleikurinn fer svo fram 12. september, en ekki 24. júlí.

Besta deild kvenna
Leikjaplan óbreytt til 23. júní (9. umferð). Breytingar hafa verið gerðar á 10. og 11. umferð mótsins.

10. umferð fer nú fram 6.-7. september og færist því aftur fyrir 18. umferð. 11. umferð fer nú fram 9. júlí, en ef Ísland kemst áfram úr riðlakeppninni og leikur 7. júlí þá færast leikirnir á 12. júlí.

Umferðir 12.-18 haldast óbreyttar og ekki er gert ráð fyrir breytingum nema ef Ísland kemst áfram og leikur 7. júlí. Það gæti þýtt að leikir í umferðum 12 og 13 myndu færast aftur um 1-3 daga.

Ef Ísland leikur til úrslita um gullið, þá kemur til frekari breytinga.


Tilkynning KSÍ

Besta deildin á KSÍ

Mjólkurbikarinn á KSÍ
Slapp
banner
banner