Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 08:30
Auglýsingar
Liverpool skólinn að skella á
Mynd: Liverpool skólinn

Afturelding og Liverpool fc. Halda saman Liverpool skóla á Íslandi fyrir börn á aldrinum 6 – 16 ára. Samstarf Aftureldingar við hið sögufræga stórlið Liverpool fc. hefur staðið yfir síðan 2011 en skólinn er nú haldinn í 14. skiptið þar sem taka þurfti hlé vegna covid á sínum tíma.


Kennslan í Liverpool academy fer fram samkvæmt hugmyndafræðinni „The Liverpool way“ og er með sama sniði um allan heim. Allar æfingar með bolta og markmið að hafa gaman af. Aðeins 16 börn eru á hvern Liverpool þjálfara þar sem þeir vilja veita persónulega kennslu, að auki eru einn til tveir íslenskir aðstoðarþjálfarar á hvern hóp til að túlka og aðstoða.

Skólarnir eru tveir og fara báðir fram á Tungubökkum í Mosfellsbæ.

11. – 13. Júní

14. – 16. júní

Kennslan fer fram frá kl 10 – 15 alla dagana. Innifalið er ávextir í smá morgunpásu og matur í hádeginu. Að loknum skóla fá öll börn bolta að gjöf.

Skráning á abler: https://www.abler.io/shop/afturelding/liverpool

 


Slapp
banner
banner