Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 09:44
Kári Snorrason
Nordsjælland að kaupa annan efnilegan KR-ing
Fæddur árið 2011.
Fæddur árið 2011.
Mynd: KR
Fannar Heimisson er á leið til FC Nordsjælland frá KR. Danski miðillinn Tipsbladet greinir frá.

Fannar verður annar leikmaðurinn sem Nordsjælland fær frá KR á stuttum tíma því danska félagið keypti Alexander Rafn Pálmason síðasta sumar og fer hann til Danmerkur eftir um það bil mánuð.

Fannar, sem er fæddur árið 2011, gengur ekki formlega til liðs við danska félagið fyrr en sumarið 2027 þegar hann verður orðinn 16 ára.

Þá mun hann skrifa undir þriggja ára samning, til sumarsins 2030.

Samkvæmt Tipsbladet höfðu nokkur stór félög í Evrópu áhuga á Fannari, þar á meðal FCK en leikmaðurinn hafi sjálfur viljað fara til Nordsjælland.

Fannar er framherji sem var búsettur á Akureyri og var í Þór þar til í fyrra. Þá skipti hann yfir í Stjörnuna og var þar í eitt ár áður en hann skipti í KR fyrr á árinu.

Fannar er bróðir Birkis Heimissonar, leikmanns Vals.
Slapp
banner