Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 12:00
Elvar Geir Magnússon
Rooney segir stuðningsmönnum Man Utd að búast ekki við titilbaráttu
Wayne Rooney með væntingastjórnun.
Wayne Rooney með væntingastjórnun.
Mynd: EPA
Wayne Rooney segir stuðningsmönnum Manchester United að vera ekki með of mikla væntingar um að liðið verði í titilbaráttu á næsta tímabili.

United sýndi miklar framfarir á nýliðnu tímabili eftir að Michael Carrick tók við en Rooney segir að það verði gríðarlega erfitt að taka skref fram á við.

United vann tólf af sautján leikjum undir stjórn Carrick, endaði í þriðja sæti og tryggði sér þátttökurétt í Meistaradeildinni. Carrick fékk nýjan samning til tveggja ára.

Sumir sparkspekingar telja að United gæti barist við Arsenal og Manchester City um enska meistaratitilinn á næsta tímabili.

„Síðan Michael kom inn þá er hefur myndast von og trú meðal stuðningsmanna Man United. Vonandi koma svo inn nokkrir nýir leikmenn sem geta hjálpað liðinu að taka næsta skref," segir Rooney.

„Manchester United vill vinna allar keppnir sem liðið tekur þátt í. En fólk þarf að vera raunsætt. Við viljum auðvitað vinna deildina og Meistaradeildina en það verður virkilega erfitt."

„Ég tel að United geti tekið skref fram á við með því að enda aftur í topp fjórum, vinna kannski FA-bikarinn og gera vel í Meistaradeildinni."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner