Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 13:00
Kári Snorrason
Atlético skoðar Reijnders á meðan beðið er svara frá Bernardo Silva
Reijnders fagnar marki. Bernardo Silva lengst til vinstri.
Reijnders fagnar marki. Bernardo Silva lengst til vinstri.
Mynd: EPA
Atletico Madrid sýnir Tijjani Reijnders, miðjumanni Manchester City, áhuga á meðan félagið bíður svara frá liðsfélaga hans Bernardo Silva.

Reijnders gekk til liðs við City frá AC Milan fyrir ári síðan fyrir rúmar 46 milljónir punda.

Hann lék 47 leiki á tímabilinu hjá liðinu en var í minna hlutverki eftir því sem leið á tímabilið.

Bernardo Silva er samningslaus og mun yfirgefa City á frjálsri sölu eftir níu ár hjá félaginu.

Atletico, Barcelona og Juventus eru öll í baráttunni um þann portúgalska en hann á eftir að gera upp hug sinn.

Slapp
banner