Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson er í liði ársins í dönsku Superligaen fyrir frammistöðu sína með Midtjylland á nýloknu tímabili.
Elías spilaði 27 leiki af 32 í deildinni og fékk á sig 27 mörk. Þá hélt hann hreinu í níu leikjum og varði eina vítaspyrnu af þeim þremur sem hann fékk á sig.
Elías spilaði 27 leiki af 32 í deildinni og fékk á sig 27 mörk. Þá hélt hann hreinu í níu leikjum og varði eina vítaspyrnu af þeim þremur sem hann fékk á sig.
Midtjylland endaði í 2. sæti í dönsku deildinni, sjö stigum á eftir meisturunum í AGF.
Félagið varð þó bikarmeistari á dögunum er liðið lagði FCK að velli í úrslitaleik danska bikarsins, 1-0.
? Årets Hold i 3F Superliga ?
— 3F Superliga (@Superligaen) May 29, 2026
Vi har allerede vist fansenes bud på Årets Hold 2025/26 og her er det baseret på statistik fra sæsonen ?
Stort tillykke til de 11 udvalgte ????????#sldk | #ditholdvoresliga pic.twitter.com/aVZnknY6p0


