Hafliði Breiðfjörð, einn ástsælasti íþróttaljósmyndari landsins og stofnandi Fótbolta.net, hefur opnað aðgengi að öllum ljósmyndum sínum úr íslenska boltanum á vefsíðunni Gosi.is
„Ég hef undanfarið ár fengið hundruði beiðna um að fá að sjá allar myndirnar sem ég tek á fótboltaleikjum og hef ekki komist yfir að svara næstum öllum,“ segir Hafliði og segir þaðan hugmyndina að vefnum hafa sprottið upp.
„Þess vegna ákvað ég í apríl að setja saman heimasíðu, www.gosi.is, til að opna aðgengið að myndunum. Þar sem ég birti allar myndir sem ég tek nú þegar eru þar allar myndir úr þeim 36 leikjum sem ég hef tekið frá því í byrjun apríl. Hægt er að finna leikina þar í tímaröð og innan hvers leiks eru svo hundruðir mynda,“ segir Hafliði.
Svipar til Spotify
Hafliði segir aðgengi að ljósmyndum ljósmyndara á íþróttaviðburðum verið ábótavant og segir hann líta á vefsíðuna eins og þegar Spotify kom til sögunnar.
„Þá gátu allir á löglegan hátt keypt aðgang og fundið uppáhalds tónlistina sína og ég vil gera það sama með íþróttaljósmyndir. Ég ákvað að ryðja brautina en veit að aðrir íþróttaljósmyndarar fylgjast með og ætla að gera slíkt hið sama ef áhuginn reynist nægur.“
„Þátttakendur í fótboltaleik eru margs konar, leikmenn, þjálfarar, dómarar, sjúkraþjálfarar, fjölmiðlafólk, áhorfendur og aðrir starfsmenn í kringum leiki. Öll vilja eiga mynd af sér í sínum störfum og nú er hægt að finna þær þarna inni,“ segir Hafliði.
Vildi hafa gjaldið hóflegt
„Ég vildi byrja að hafa gjaldið mjög hóflegt, og fyrstu mánuðina verður það í kringum 2000 krónur á hverja mynd. Kerfið sem ég nota er erlent og aðeins hægt að innheimta í erlendri mynt, því er gjaldið á hverja mynd rukkað í dollurum, 16 dollarar hver mynd. Allar myndirnar eru með vatnsmerki en um leið og mynd er keypt er hægt að hlaða henni niður án vatnsmerkis.“
En hvers vegna Gosi.is?
„Ég hef átt þetta lén undanfarna áratugi og hef loksins fundið not fyrir það, það er auðvelt að muna og þægilegt fyrir alla að slá inn. Uppsetningin á vefnum er eins einföld og hægt er og þægilegt að skoða í gegnum myndirnar,“ segir Hafliði að lokum.




