Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   lau 30. maí 2026 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bernardo Silva búinn að velja sitt næsta félag
Bernardo Silva.
Bernardo Silva.
Mynd: EPA
Portúgalski miðjumaðurinn Bernardo Silva mun yfirgefa Manchester City í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út.

Bernardo hefur átt frábæran tíma í Manchester og unnið mikinn fjölda titla.

Núna segir portúgalski fjölmiðillinn A Bola að leikmaðurinn sé búinn að velja sér sitt næsta félag og hann hafi skipað umboðsmanni sínum, Jorge Mendes, að hefja viðræður við það félag.

Félagið sem um ræðir er Barcelona en Bernardo Silva hefur lengið verið orðaður við Katalóníustórveldið.

Bernardo verður 32 ára í sumar en hann sýndi það í ensku úrvalsdeildinni í vetur að hann á eitthvað eftir í tankinum.
Slapp
banner
banner
banner