Chelsea hyggst gera tilraun til að fá Ibrahima Konaté frá Liverpool í sumar samkvæmt fréttum L'Equipe.
Franski landsliðsmaðurinn er ekki að ná samkomulagi við Liverpool um nýjan samning og segir miðillinn að nokkur stórlið fylgist grannt með stöðu hans.
Franski landsliðsmaðurinn er ekki að ná samkomulagi við Liverpool um nýjan samning og segir miðillinn að nokkur stórlið fylgist grannt með stöðu hans.
Real Madrid, Bayern München og Chelsea eru öll sögð áhugasöm um varnarmanninn.
Konaté gekk í raðir Liverpool frá RB Leipzig árið 2021 og hefur verið stór partur af vörn liðsins undanfarin ár. Á meðan vantar Chelsea sárlega miðverði.


