Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
banner
   fös 29. maí 2026 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fimm leikmenn sem Liverpool gæti horft til í stað Konate
Ibrahima Konate.
Ibrahima Konate.
Mynd: EPA
Liverpool gæti þurft að demba sér á leikmannamarkaðinn til að sækja miðvörð eftir fréttir um að Ibrahima Konaté sé á leið frá félaginu.

Þessi 27 ára gamli franski miðvörður hefur verið í viðræðum við félagið um nýjan samning en ekki hefur náðst að semja og útlit er fyrir að það gerist ekki.

Konate hefur spilað 181 leik fyrir Liverpool síðan hann gekk til liðs við félagið frá Leipzig árið 2021. Hann vann úrvalsdeildina einu sinni, enska bikarinn einu sinni og deildabikarinn tvisvar.

Liverpool hefur þegar tryggt sér Jeremy Jacquet frá Rennes, sem á að styrkja breiddina á meðan Giovanni Leoni er að jafna sig eftir meiðsli.

Þá eru spurningar um framtíð Virgil van Dijk sem er á leið inn í sitt síðasta ár á núgildandi samningi sínum.

Forráðamenn félagsins eru því sagðir skoða markaðinn vandlega. Give Me Sport tók saman fimm möguleika fyrir enska stórliðið en þá má sjá hér fyrir neðan.
Slapp
banner
banner
banner