Skagamenn unnu góðan sigur á FH í kvöld þegar 9. umferð Bestu deild karla hóf göngu sína.
Lestu um leikinn: FH 0 - 1 ÍA
„Það voru ekki mikið um færi í þessum leik" sagði Lárus Orri Sigurðsson þjálfari ÍA eftir sigurinn í kvöld.
„Mér fannst við spila boltanum oft á tíðum bara nokkuð vel. Mér fannst við verjast þeirra sóknum vel í leiknum og leikmenn voru að gefa allt í þetta"
„Ég held að við höfum verið búnir að skjóta tvisvar í stöngina, Gísli Eyjólfs fékk mjög gott færi í fyrri hálfleik eftir aukaspyrnu hjá okkur þannig manni var svolítið farið að lengja eftir markinu í lokin og það var mjög sætt að sjá hann fara inn"
Lárus Orra fannst sitt lið hafa örlítið meiri gæði í leiknum og það var það sem skildi á milli.
„Ég held að við á endanum höfum haft bara aðeins meiri gæði. Þrátt fyrir að ég segi það þá er FH liðið gott"
„Þú sérð að þetta lið sem FH stillir upp í dag er með Úlf Ágúst og Kristján Flóka frammi. Kjartan Kára og Arnór Borg á köntunum og strákana tvo á miðjunni. Þetta er hörku lið sem að þeir eru með"
„Svo eru þeir með Gils á bekknum og eru með hörku spilara á bekknum líka þannig ég er alveg gríðarlega feginn að hafa komið hingað og náð í þessi þrjú stig"
Skaginn hefur fengið örlitla gagnrýni fyrir hversu hægt þeir eru að fara af stað í mótinu.
„Við vissum það alveg fyrir mótið að það yrði mjög stutt á milli og þetta er það sem við töluðum um hvort sem að það sé innan hópsins eða inn í stuðningsmannahópum uppi á Skaga"
„Við vitum að það sé mjög stutt á milli. Í fyrra var mjög stutt á milli. Það eru bara örfáir sigrar eða nokkur töp þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða ert í baráttu um Evrópusæti"
„Við gerðum okkur alveg grein fyrir því að þetta yrði erfitt en gagnrýnisraddir, ég held að það séu flestir sem sýni því skilning hvað við erum að gera. Ég held að þeir sem hafa verið að koma á leikina og hafa verið að sjá leikina hafi séð hvað við höfum verið að spila og ég held að við höfum fengið meiri þolinmæði einmitt útaf því hvernig við höfum verið að spila" sagði Lárus Orri Sigurðsson.
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 9 | 8 | 1 | 0 | 29 - 5 | +24 | 25 |
| 2. KR | 9 | 7 | 1 | 1 | 33 - 20 | +13 | 22 |
| 3. Fram | 8 | 5 | 2 | 1 | 21 - 13 | +8 | 17 |
| 4. Breiðablik | 8 | 4 | 3 | 1 | 19 - 11 | +8 | 15 |
| 5. Valur | 9 | 5 | 0 | 4 | 18 - 17 | +1 | 15 |
| 6. ÍA | 9 | 3 | 3 | 3 | 12 - 16 | -4 | 12 |
| 7. Keflavík | 8 | 3 | 2 | 3 | 11 - 12 | -1 | 11 |
| 8. KA | 8 | 3 | 1 | 4 | 9 - 10 | -1 | 10 |
| 9. Stjarnan | 9 | 2 | 1 | 6 | 15 - 21 | -6 | 7 |
| 10. Þór | 8 | 2 | 0 | 6 | 6 - 20 | -14 | 6 |
| 11. FH | 9 | 0 | 2 | 7 | 12 - 26 | -14 | 2 |
| 12. ÍBV | 8 | 0 | 2 | 6 | 8 - 22 | -14 | 2 |






















