Mark Hughes hefur látið af störfum sem stjóri Carlisle í ensku utandeildinni. Rob Elliot, fyrrum markvörður Newcastle, hefur verið ráðinn í hans stað.
Hughes tók við liðinu í febrúar 2025 en tókst ekki að bjarga Carlisle frá falli niður í utandeildinni.
Hann hélt þó starfinu áfram og stýrði liðinu í þriðja sæti á nýliðnu tímabili með 95 stig, en Carlisle féll úr leik gegn Boreham Wood í undanúrslitum umspilsins.
Hughes ákvað því að láta að störfum en ferill hans hefur verið athyglisverður síðustu árin. Hann stýrði Blackburn, Manchester City, QPR, Stoke og Southampton í ensku úrvalsdeildinni en hefur síðustu árin stýrt Bradford og Carlisle sem eru talsvert minni félög.
Elliot, sem er 40 ára gamall, kemur til Carlisle frá Gateshead en hann hefur verið að stíga sín fyrstu skref í þjálfun.
Carlisle tilkynnti komu Elliot aðeins nokkrum klukkustundum eftir að félagið staðfesti brottför Hughes.

