Valur tapaði gegn Þrótti 0-1 á Hlíðarenda í kvöld, í sjöundu umferð Bestu deildarinnar, þrátt fyrir að hafa leikið manni fleiri síðasta hálftímann. Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals, var svekkt með frammistöðuna og taldi liðið ekki hafa gert nóg til að verðskulda stigin þrjú.
„Já mér fannst við eiginlega ekki alveg nógu góðar í dag til að verðskulda sigur í dag. Ógeðslega svekkjandi að ná ekki að fylgja eftir sigri í síðasta leik.“
Lestu um leikinn: Valur 0 - 1 Þróttur R.
Að hennar mati var lítið sem skildi liðin að fyrir utan eina mark leiksins.
„Þetta var nú kannski frekar jafn leikur myndi ég halda og ekki margt sem skildi að, í rauninni bara þetta eina mark. Ég hefði viljað sjá okkur gera miklu betur bæði með og án bolta.“
Valur fékk kjörið tækifæri til að snúa leiknum sér í hag þegar Þróttur missti leikmann af velli þegar rúmlega hálftími var eftir. Málfríður telur þó að liðið hafi ekki nýtt stöðuna nægilega vel.
„Mér fannst við pressa ágætlega á þær þegar við vorum einum fleiri og vorum eiginlega óheppnar að ná ekki að skora á því tímabili.“
„Augljóslega hefðum við átt að pressa þær ennþá meira, gera það betur og ná að troða inn mörkum.“
Valur er ekki á þeim stað í töflunni sem liðið hefði vonast til eftir fyrstu sjö umferðirnar. Fram undan er landsleikjahlé og Málfríður segir að það verði nýtt til að bæta leik liðsins.
„Við þurfum bara að taka á því út á æfingasvæði og slípa okkur saman.“
Þrátt fyrir erfiða byrjun á tímabilinu ríkir bjartsýni innan herbúða Vals.
„Við erum bara bjartsýnar fyrir restinni af tímabilinu og markmiðið er bara að mæta í næsta leik og vinna. Taka á því á æfingum og reyna að verða betra lið og njóta þess að spila fótbolta.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.






















