Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fara í tveggja þjálfara kerfi
Lincoln leikur í Championship-deildinni á næsta tímabili.
Lincoln leikur í Championship-deildinni á næsta tímabili.
Mynd: Lincoln City
Það hefur tíðkast svolítið á Íslandi undanfarin ár að félög séu að ráða tvo aðalþjálfara. Oftar en ekki virkar það ekki.

Það hefur minna verið um þessa bylgju á Englandi en núna hefur Lincoln City, sem leikur í Championship-deildinni á næsta tímabili, ákveðið að taka þetta skref.

Michael Skubala, sem náði því magnaða afreki að koma Lincoln upp í B-deild, hætti í dag með liðið til að taka við Bristol City. Lincoln var ekki lengi að gefa út yfirlýsingu um framtíðarplönin.

Chris Cohen og Tom Shaw hafa verið ráðnir aðalþjálfarar liðsins og taka þeir saman við liðinu. Þeir voru aðstoðarmenn Skubala á síðasta tímabili.

„Þeir eru framúrskarandi þjálfarar, frábærir einstaklingar og hafa tekið menningunni, kröfunum og sjálfsmyndinni sem við höfum lagt hart að okkur við að byggja upp hjá Lincoln City fullkomlega opnum örmum," sagði framkvæmdastjóri félagsins, Liam Scully.


Slapp
banner
banner