Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 19:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svona er ný góðgerðartreyja FH
Mynd: FH
FH gefur á hverju ári út góðgerðartreyju og í kvöld frumsýnir félagið treyju ársins.

Treyjan í ár er myndskreytt af Einstökum börnum og er full af lífi, lit og gleði.

Hvert númer á treyjunni er einstakt listaverk og því geta stuðningsmenn valið sér treyju sem er bókstaflega eins og engin önnur.

Lagið í ár er með Hafnarfjarðarbandinu Súrefni, sumarsmellurinn Skyzo sem kom út árið 1999 og leikarinn ástsæli Arnór Björnsson ljær verkefninu rödd sína. Áður en Arnór sló í gegn á sviði og skjá átti hann farsælan feril í yngri flokkum FH.

Síðustu ár hefur skapast sú hefð að þriðji búningur FH sé helgaður ákveðnu góðgerðarfélagi. Þúsund krónur af hverri seldri treyju renna til félagsins og hefur Auður, helsti styrktaraðili FH, tvöfaldað þá upphæð.

Síðustu ár hafa safnast yfir 5 milljónir sem hafa runnið til Bleiku slaufunar, Píeta og Gleym mér ei. Mikil leynd ríkir yfir lit búningsins og því hvaða málefni verður styrkt þetta árið.

Hér fyrir neðan má sjá myndband þar sem treyjan er kynnt.


Slapp
banner
banner
banner