Leikur Fram og Breiðabliks fór fram á Lambhagavelli í kvöld í 9. umferð Bestu deild karla. Fórbolti.net ræddi við Ólaf Inga Skúlason, þjálfara Breiðabliks, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Fram 4 - 3 Breiðablik
„Við vorum slakir í dag og Framararnir voru yfir í öllu í dag og verðskulduðu sigurinn. Varnarleikurinn langt frá því að vera nógu góður, við vorum passívir, undir í einvígjum og það er bara hægt að telja heilan helling upp. Við byrjum ekki leikinn og erum bara algjörir farþegar fyrstu mínúturnar. Heilt yfir er ég bara virkilega vonsvikinn.''
Byrjun Blika í mótinu hefur ekki verið nægilega góð og eru þeir tíu stigum frá toppsætinu. Hvernig horfir Ólafur við framhaldinu?
„Byrjunin hefur ekki verið eins góð og við hefðum viljað, þetta eru búnar að vera brokkgengnar frammistöður hjá okkur. Síðasti leikur var frábær og það var kannski eini leikurinn þar sem við höfum náð að tengja saman 90 mínútna frammistöðu. Frammistaðan í dag var virkilega slæm og þetta hefur verið aðeins upp og niður og við þurfum bara klárlega að gera mun betur ef við ætlum að elta þessi topplið.''
Nú tekur við rúmlega tveggja vikna frí þar sem næsti leikur Blika er 14. júní gegn Stjörnunni. Hvernig ætlar Ólafur að nýta tímann í millitíðinni?
„Við þurfum að setjast yfir þetta og rýna í þessa leiki og þessi moment þar sem við slökkvum á okkur þar sem við verðum passívir. Fyrst og fremst þurfum við að taka skref í andlega þættinum og vera miklu aggressívari í að hafa fyrir hlutunum. Mér finnst við stundum halda að við getum komist upp með það að spila bara okkar fótbolta án þess að þurfa að hafa fyrir því og það er áhyggjuefni.''
Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum hér að ofan























