Í dag fer fram úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu í Búdapest. Það er nýr leiktími miðað við síðustu ár þar sem flautað verður til leiks klukkan 16:00 að íslenskum tíma.
Ríkjandi meistarar Paris Saint-Germain mæta Englandsmeisturum Arsenal í úrslitaleiknum.
Ríkjandi meistarar Paris Saint-Germain mæta Englandsmeisturum Arsenal í úrslitaleiknum.
PSG fór í gegnum Bayern í undanúrslitunum á meðan Arsenal bar sigur úr býtum gegn Atletico Madrid.
Þetta verður vægast sagt athyglisverður úrslitaleikur þar sem tveir mjög mismunandi leikstílar mætast.
Arsenal hefur aldrei unnið Meistaradeildina á meðan PSG vann keppnina í fyrsta sinn í fyrra.
laugardagur 30. maí
16:00 PSG - Arsenal



