Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   lau 30. maí 2026 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Liverpool bíður með að virkja ákvæði í samningi Quansah
Jarell Quansah.
Jarell Quansah.
Mynd: EPA
Miðvörðurinn Jarell Quansah verður að öllum líkindum áfram hjá Bayer Leverkusen á næstu leiktíð samkvæmt upplýsingum þýska dagblaðsins BILD.

Liverpool seldi miðvörðinn til þýska félagsins síðasta sumar fyrir 35 milljónir evra en tryggði sér jafnframt endurkaupsákvæði fyrir sumrin 2026 og 2027.

Ákvæðið fyrir þetta sumar rennur fljótlega út og Liverpool hefur ákveðið að nýta það ekki.

Enska félagið hefði þurft að greiða 80 milljónir evra til að fá Quansah til baka núna, en samkvæmt fréttum er hugmyndin frekar sú að varnarmaðurinn haldi áfram að þróast hjá Leverkusen og snúi síðan aftur til Anfield árið 2027 sem lykilmaður. Þá mun endurkaupsverðið lækka niður í 60 milljónir evra.

Quansah, sem er 23 ára gamall, var einn af fáum leikmönnum Bayer Leverkusen sem átti sterkt tímabil. Miðvörðurinn, sem hefur unnið sér sæti í enska landsliðinu undir stjórn Thomas Tuchel, er talinn lykilmaður hjá Leverkusen á næstu leiktíð, sama hver tekur við stjórastöðunni hjá félaginu.
Slapp
banner
banner